Útlagi. peysa
Útlagi. peysa
Ofsalega skemmtileg peysa, bæði að prjóna og njóta! Öll munstur eru einföld og byggð á 4 lykkjum í 4 umferðum.
Peysan er prjónuð ofanfrá og niður, í hring. Stroff í hálsi er gert tvöfalt með því að prjóna uppfit við síðustu umferð af stroffi. Hálsmál er mótað með því að prjóna styttar umferðir í byrjun á berustykki. Á berustykki er aukið út sitthvoru megin við laska. Peysunni er síðan skipt upp í ermar og bol. Fellt er af með ítalskri affellingu til að fá teygjanlegt stroff neðst á bol og ermum.
Peysan kemur í 6 stærðum: 1 árs, 2 ára, 3 ára, 4 ára, 5 ára og 6 ára.
Stærðir: 1 2 3 4 5 6
Yfirvídd: 65 67 70 72 76 78
Lengd á bol 21 23 25 28 30 32
Garnmagn 4 5 6 6 7 8
Garn: Uppgefið garn er Smart garn frá Sandnes. Garnið er gefið upp sem 50 g = 100 metrar. Auðvelt er að skipta garninu út fyrir annað sem gefur sömu prjónfestu.
Prjónfesta: 21 L í sléttu prjóni á prj nr 4.
Efni og áhöld:
- Sokkaprjónar nr 3½ og 4.
- Hringprjónar nr 3½ og 4.
- Prjónamerki.
- Nál til að ganga frá endum og fella af með ítalskri affellingu.