Tindur, rennd hettupeysa
Tindur, rennd hettupeysa
Smart rennd peysa með hettu
Munstur er neðst á ermum og bol, axlastykki og hettu.
Peysan er prjónuð í hring neðanfrá og upp og síðar klippt upp til að opna hana. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Að lokum er heklaður kantur við opnun að framan.
Prjónuð úr plötulopa á prjóna nr 6.
Stærðir S M L XL XXL
Yfirvídd 94 99 105 111 116
Ermalengd 49 50 51 52 53
Lengd á bol 41 42 43 44 45
Efni og áhöld
Rennilás
Sokkaprjónar nr 4½ og 6
Hringprjónar nr 4½ og 6
Heklunál nr 4
Prjónfesta
10 x 10 cm = 14 L og 21 umf á prjóna nr 6.
Garn: Prjónuð úr tvöföldum plötulopa frá Ístex. Miðast við 100g plötur.
Litur A: 9103 - 2 plötur í öllum stærðum |
Litur B: 1026 - 6, 6, 6, 7, 7 plötur |
Litur C: 0001 - 1 plata í öllum stærðum |
Litur D: 0005 - 1 plata í öllum stærðum |