Stelpa, hneppt símunstruð peysa
Stelpa, hneppt símunstruð peysa
Skemmtileg og lífleg peysa
Munstur er á ermum, bol og axlarstykki.
Peysan er prjónuð í hring neðanfrá og upp. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Prjónuð úr léttlopa.
Stærðir 1 2 4 6
Yfirvídd 56 63 70 76
Ermalengd 20 23 26 29
Lengd á bol 20 23 26 29
Efni og áhöld
6, 7, 7, 8 tölur
Sokkaprjónar nr 3½ og 4½
Hringprjónar nr 3½ og 4½
Heklunál nr 3½
Prjónfesta
10 x 10 cm= 18 L og 24 umf prjónar nr 4½.
Garn: Prjónuð úr léttlopa frá Ístex. Miðast við 50g dokkur. 9 litir:
A: 1412 - 1 í öllum stærðum |
B: 0051 - 3, 4, 4, 5 |
C: 1406 - 1 í öllum stærðum |
D: 1404 - 1 í öllum stærðum |
E: 1411 - 1 í öllum stærðum |
F: 0053 - 1 í öllum stærðum |
G: 1400 - 1 í öllum stærðum |
H: 9434 - 1 í öllum stærðum |
I: 1413 - 1 í öllum stærðum |