Sóley, peysa, húfa og vettlingar
Sóley, peysa, húfa og vettlingar
Dásamlega fallegt sett fyrir lítil kríli.
Peysan er prjónuð ofanfrá og niður, í hring. Munstur er á berustykki og aukið út sitthvoru megin við laska. Peysunni er síðan skipt upp í ermar og bol. Fellt er af með ítalskri affellingu til að fá teygjanlegt stroff neðst á bol og ermum.
Athugið að stærðir eru eingöngu til viðmiðunar.
Stærðir: Flíkurnar koma í 7 stærðum: 6-12 mán, 1 árs, 2 ára, 3 ára, 4 ára, 5 ára og 6 ára.
Stærðir: 6-12 1 2 3 4 5 6
Yfirvídd: 56 58 60 63 67 70 73
Lengd á bol: 19 21 23 24 26 28 30
Garnmagn peysa: 5 5 5 6 6 7 8
Garnmagn húfa: 2 2 2 2 2 2 2
Garnmagn vettlingar: 1 1 1 1 2 2 2
Garn: Uppgefið garn er Smart garn frá Sandnes. Garnið er gefið upp sem 50 g = 100 metrar. Auðvelt er að skipta garninu út fyrir annað sem gefur sömu prjónfestu.
Prjónfesta: 21 L í sléttu prjóni á prj nr 4 og 24 L í munsturprjóni.