Perla kjóll
Perla kjóll
Einstaklega fallegur kjóll
Kjóllinn er aðsniðinn og með víðu hálsmáli. Fallegur bæði sem sparikjóll eða hversdags.
Munstur neðst á pilsi.
Kjóllinn er prjónaður í hring neðanfrá og upp. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Prjónaðir úr léttlopa.
Stærðir XS/S M/L XL/XXL
Yfirvídd mitti 86 97 108
Yfirvídd brjóst 94 105 116
Ermalengd 29 31 33
Lengd á bol 68 70 72
Efni og áhöld
Sokkaprjónar nr 4½ og 5½
Hringprjónar nr 4½ og 5½
Prjónfesta
10 x 10 cm= 15 L og 20 umf á prjóna nr 5½.
Garn: Prjónuð úr léttlopa frá Ístex. Miðast við 50g dokkur. 2 litir:
Litur A: 9428 - 10, 11, 12 dokkur |
Litur B: 0051 – 1 dokka í öllum stærðum |