Hyrna lopapeysa
Hyrna lopapeysa
Klassísk lopapeysa með kindum
Lopapeysa með afskaplega skemmtilegu kindamunstri.
Munstur er neðst á ermum og bol og á axlastykki.
Peysan er prjónuð í hring neðanfrá og upp og síðar klippt upp til að opna hana. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Að lokum er heklaður kantur við opnun að framan.
Prjónuð úr plötulopa á prjóna nr 6.
Stærðir S M L XL XXL
Yfirvídd 88 94 103 109 117
Ermalengd dömu 46 47 48 49 50
Ermalengd herra 49 50 51 52 53
Lengd á bol dömu 34 35 36 37 38
Lengd á bol herra 40 42 44 46 48
Efni og áhöld
Sokkaprjónar nr 5 og 6
Hringprjónar nr 5 og 6
Prjónfesta
10 x 10 cm = 14 L og 21 umf á prjóna nr 6.
Plötulopi frá Ístex, miðast við 100g plötur. 4 litir:
Litur A: 1032- 1 plata í öllum stærðum |
Litur B: 1423 - 5, 5, 6, 6, 7 plötur |
Litur C: 0001 - 1 plata í öllum stærðum |
Litur D: 1033 - 1 plata í öllum stærðum |